Veðskuld slhf. : Innborgun á höfuðstól
Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. september næstkomandi. Sjóðurinn mun því mánudaginn 16. september 2024 greiða alls 40.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna vaxta og afkomuauka, afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda.