Í 42. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.244.000 eigin hluti að kaupverði 8.507.320 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16/10/2024 | 15:09:03 | 994.000 | 3.78 | 3.757.320 |
17/10/2024 | 14:14:26 | 688.000 | 3.8 | 2.614.400 |
18/10/2024 | 09:44:41 | 562.000 | 3.8 | 2.135.600 |
Samtals | 2.244.000 | 8.507.320 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 65.580.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 67.824.000 hluti, eða um 1,84% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 258.110.210 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is