Fossar fjárfestingarbanki hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki


Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki FOS 281026 sem gefinn er út undir 12.000.000.000 útgáfuramma bankans.

FOS 281026 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber 9,2% vexti, sem greiddir eru tvisvar á ári til lokagjalddaga 28. október 2026. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 9,48%.

Skuldabréfin voru seld í einkaútgáfu (e. private placement). Nafnverðseining skuldabréfanna er 20 m.kr. og var útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka hf. hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Uppgjörsdagur viðskiptanna er áætlaður 28. október 2024.

Nánari upplýsingar:

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is