Kvika banki hf.: Birting ársreiknings miðvikudaginn 12.febrúar


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2024 á stjórnarfundi miðvikudaginn 12. febrúar og verður hann birtur eftir lokun markaðar.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 15.ágúst kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fundinn eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg áður en fundurinn hefst.


GlobeNewswire

Recommended Reading