Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 13. febrúar kl. 15:00. Boðinn verður til sölu verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 30 og óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29.

Áætlaður uppgjörsdagur er 20. febrúar 2025.

Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.


GlobeNewswire

Recommended Reading