Traustur rekstur við krefjandi aðstæður
• Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á síðasta ári nam 41,5 milljörðum króna, eða tæplega 301 milljón dollara.
• Fjárhagsstaða fyrirtækisins er sterkari en nokkru sinni áður, eiginfjárhlutfall er 66,2% og skuldsetning 1,6x rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.
• Stjórn fyrirtækisins hyggst leggja til að arður til ríkisins verði 25 milljarðar kr. í ár.
• Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021 til 2024 nemur því um 90 milljörðum kr.
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Rekstur Landsvirkjunar gekk áfram vel á árinu 2024, þótt afkoman hafi ekki jafnast á við metárið 2023. Aðstæður voru krefjandi á árinu, vatnsbúskapur sögulega lakur, sem leiddi til þess að tekjur drógust saman vegna minni raforkusölu. Þá urðu breytingar á verðtengingu í samningi við stórnotanda, auk þess sem innleystar áhættuvarnir lækkuðu frá fyrra ári. Afkoman var því vel ásættanleg miðað við aðstæður. Fjárhagsleg staða fyrirtækisins hefur aldrei verið betri og þar með bolmagn þess til þess að setja þann kraft í orkuöflun sem er nauðsynlegur til að mæta þörfum íslensks samfélags.
Á árinu 2024 hófust loks framkvæmdir við 120 MW Búrfellslund og 95 MW Hvammsvirkjun, eftir ítrekaðir tafir í leyfisveitingaferlinu. Þessar nýju virkjanir mæta brýnni þörf fyrir frekari raforku til að mæta orkuskiptum og vexti samfélagsins. Afar mikilvægt er að ekki verði frekari tafir á framgangi þessara verkefna. Á árinu 2025 áformum við einnig að hefja framkvæmdir við stækkun Þeistareykja- og Sigöldustöðvar. Aldrei áður hefur fyrirtækið unnuð að fernum nýframkvæmdum á sama tíma, með þremur mismunandi orkugjöfum.
Mikið reyndi á innviði Landsvirkjunar við þær erfiðu aðstæður sem ríktu á síðasta ári vegna mikillar eftirspurnar og sögulega lítils innrennslis til lóna. Álag var mikið á starfsfólk, sem og þau kerfi og verklag sem þróuð hafa verið innan fyrirtækisins. Það var mjög ánægjulegt að sjá hversu vel tókst að takast á við þessar krefjandi aðstæður og standa við allar skuldbindingar fyrirtækisins.“
Viðhengi