Veðskuldabréfasjóður ÍV er sérhæfður hlutdeildarsjóður sem starfar skv. lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Rekstaraaðili sjóðsins skv. sömu lögum eru ÍV sjóðir hf. og Íslensk verðbréf hf. sinna hlutverki vörsluaðila.
Árshlutareikningur Veðskuldabréfasjóðs ÍV er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um ársreikninga rekstrarfélaga verðbréfasjóða, rekstraraðila sérhæfðra sjóða, verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða.
Hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu 2024 að fjárhæð 144 m.kr. samanborið við 140 m.kr. árið 2023.
Hrein eign sjóðsins nam 1.731 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Viðhengi