IS Fyrirtækjalánasjóður hs. - umframgreiðsla á höfuðstól


Í samræmi við skilmála skuldabréfsins ISFYR 24 1 mun útgefandi nýta sér heimild og greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins þann 4. mars nk. Um er að ræða óreglulega afborgun að fjárhæð kr. 2.250.000.000. Umframgreiðslan er tilkomin vegna uppgreiðslu á undirliggjandi eign í eigu útgefanda.

Nánari upplýsingar veita Brynjólfur Stefánsson brynjolfur@islandssjodir.is og Gísli Elvar Halldórsson gislielvar@islandssjodir.is


GlobeNewswire

Recommended Reading