Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla 5. mars 2025


Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í dag. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 800 m.kr. á bilinu 8,55% - 8,80% flötum vöxtum. 

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 25 0911 voru samtals 740 m.kr. á 8,80% flötum vöxtum. 

Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.  

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 11. mars 2025. 

Nánari upplýsingar: 

Ernir Jónsson 
Fossar fjárfestingarbanki 
Sími: 832-4002 
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is 

Ásgrímur Gunnarsson 
Fossar fjárfestingarbanki 
Sími: 832-4040 
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is 





GlobeNewswire

Recommended Reading