Landsbankinn hf.: Útgáfa víkjandi forgangsbréfa í norskum krónum


Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 500 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru til fimm ára og með heimild til innköllunar að fjórum árum liðnum (5NC4). Útgáfukjör miðast við 165 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og er stefnt að töku til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 26. mars 2025.

Umsjónaraðili sölunnar var Nordea.


GlobeNewswire

Recommended Reading