Reykjavíkurborg – ársuppgjör og kynningarfundur fyrir markaðsaðila


Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 var lagður fyrir borgarráð í dag 2. maí og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn þann 6. maí næstkomandi.

Hér með er boðað til opins kynningarfundar fyrir markaðsaðila mánudaginn 5. maí kl. 8:30. Fundurinn fer fram í skrifstofum Reykjavíkurborgar Borgartúni 12, 7. hæð í Kerhólum.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs munu fara yfir helstu atriði í uppgjöri ársins, stöðu og horfur, ásamt því að svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir,
Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
halldora.karadottir@reykjavik.is


GlobeNewswire