Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla 22. maí 2025


Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í dag. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 860 m.kr. á bilinu 8,46% - 8,78% flötum vöxtum.

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 25 1128 voru samtals 480 m.kr. á 8,60% flötum vöxtum.

Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 30. maí 2025.

Nánari upplýsingar:

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4002
Netfang: ernir.jonsson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is


Recommended Reading