REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 22. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 462.126 eigin hluti að kaupverði 54.098.742 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
27/5/2511:20100.000114,0011.400.0001.005.000
27/5/2511:5210.000115,001.150.0001.015.000
28/5/2511:18100.000118,0011.800.0001.115.000
28/5/2514:31100.000118,0011.800.0001.215.000
30/5/2511:25150.000118,0017.700.0001.365.000
30/5/2511:34926117,00108.3421.365.926
30/5/2514:101.200117,00140.4001.367.126
Samtals 462.126 54.098.7421.367.126


Reitir hafa nú keypt samtals 1.367.126 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 32,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 156.263.742 kr. sem samsvarar 31,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.                      

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.200.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.                     

Frá birtingu uppgjörs fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 1.367.126 eigin hluti fyrir 156.263.742 kr.                        

Reitir eiga nú samtals 1.367.126 eigin hluti, eða um 0,20% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 695.632.874.                   

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.


Recommended Reading