Alma íbúðafélag hf.: Stækkun skuldabréfaflokksins AL210926


Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL210926 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL 210926 er óverðtryggður og ber fljótandi vexti tengdum 3 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 1,40% vaxtaálagi. Lokagjalddagi flokksins er 21. september 2026. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á pari og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar 3.100 m.kr.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 18. júlí 2025 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Acro verðbréf hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., í tölvupósti ingolfur@al.is.


Recommended Reading