Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 50. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 57.300.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
8.12.202514:031.000.00014,2514.250.000135.478.282
9.12.202509:471.000.00014,2514.250.000136.478.282
10.12.202510:251.000.00014,2014.200.000137.478.282
12.12.202515:171.000.00014,6014.600.000138.478.282
  4.000.000 57.300.000138.478.282


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. nóvember 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 134.478.282 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 138.478.282 eða sem nemur 5,60% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 25.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,01% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 348.000.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.


Recommended Reading