Fossar fjárfestingarbanki hf.: Útboð á víxlum 4. mars 2026


Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 4. mars 2026. 

Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 26 0909 með lokagjalddaga þann 9. september 2026. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum sem tekið er. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. og er útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129. Bankinn áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða fimmtudaginn 5. mars. 

Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Fossa fjárfestingarbanka fyrir kl. 17:00, miðvikudaginn 4mars, á netfangið utbod@fossar.is. 

Nýr útgáfurammi bankans var samþykktur af stjórn Fossa þann 18. desember 2025 og nemur fjárhæð hans 15.000.000.000 kr. Útgáfuramminn er ótímabundinn og tók gildi 1. janúar 2026. 

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 11. mars 2026. 

Nánari upplýsingar veita

Arnar Friðriksson 
Fossar fjárfestingarbanki hf. 
Sími: 865-8101 
Netfang: arnar.fridriksson@fossar.is 

Ásgrímur Gunnarsson 
Fossar fjárfestingarbanki hf. 
Sími: 842-4040 
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is 


GlobeNewswire

Recommended Reading