Breytingar á framkvæmdastjórn Ísfélags hf.


Jón Páll Kristófersson, sölu- og markaðsstjóri Ísfélags hf. hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Jón Páll Kristófersson er fæddur árið 1971.  Jón Páll er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri.  Hann var rekstrarstjóri hjá Ramma hf. og síðar Ísfélagi hf. í Þorlákshöfn frá árinu 2000 til 2024.  Jón Páll á beinan eignarhlut í eigin nafni alls 958.140 hluti, eða sem svarar til 0,12% af skráðu hlutafé félagsins.  Enn fremur er Jón Páll eigandi alls hlutafjár í Rúnu ehf. sem á 360.000 hluti í félaginu, eða sem svarar til 0,04% af skráðu hlutafé þess.


GlobeNewswire

Recommended Reading