Rarik birtir vottaða umgjörð um græna fjármögnun


Rarik ohf. hefur birt umgjörð um græna fjármögnun (Green Financing Framework) í þeim tilgangi að geta gefið út græn skuldabréf. Markmið útgáfunnar er að fjármagna eða endurfjármagna verkefni, eignir og fjárfestingar sem falla undir umgjörðina. Verkefnin sem fjármögnuð verða með útgáfu grænna skuldabréfa þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í umgjörð Rarik um græna fjármögnun, en hún byggir á alþjóðlegum viðmiðum um græn skuldabréf (e. Green Bond Principles) 2025 sem International Capital Market Association (ICMA), Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði hafa sett saman af eftirfarandi stoðum:

  • Ráðstöfun fjármuna
  • Ferli um mat og val á verkefnum
  • Stýring fjármuna
  • Upplýsingagjöf

Umgjörð Rarik um græna fjármögnun hefur hlotið vottun frá Moody’s Ratings sem er viðurkenndur vottunaraðili á heimsvísu með yfir 35 ára reynslu á mati á umhverfis-, félags- og stjórnarháttum fyrirtækja. Hún hlaut einkunnina SQS1 (excellent) sem er hæsta einkunn á einkunnarskala Moody’s Ratings. Samkvæmt vottuninni er umgjörðin í samræmi við ofangreind viðmið ICMA um græn skuldabréf (GBP) 2025 sem og viðmið LMA, APLMA og LSTA um grænar lánveitingar (GLP) 2025. Einnig endurspeglar umgjörðin með skýrum hætti verulegt framlag Rarik til sjálfbærni.Umgjörðin um græna fjármögnun var unnin í samstarfi við Landsbankann og hana, ásamt áliti Moody’s Ratings, má nálgast á vef Rarik, rarik.is.

„Við fögnum því mjög að umgjörð okkar um græna fjármögnun hafi hlotið hæstu einkunn frá Moody’s Ratings. Sú niðurstaða er mikilvæg viðurkenning á þeirri vegferð sem við höfum verið á undanfarin ár, það er, í átt að aukinni sjálfbærni, ábyrgum rekstri og markvissri uppbyggingu. Umgjörðin mun jafnframt styðja enn frekar við áherslur okkar um fjárfestingu og viðhald innviða um land allt, með það að markmiði að stuðla að orkuskiptum á landsbyggðinni og skapa forsendur fyrir blómlegu atvinnulífi og þróttmiklum samfélögum,“ segir Elísabet Ýr Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Rarik.

Nánari upplýsingar veitir:

Elísabet Ýr Sveinsdóttir
Framkvæmdastjóri fjármála
Netfang: elisve@rarik.is

Viðhengi



Attachments

Rarik - Second Opinion - Moody's Ratings - April 2026 Rarik Green Financing Framework 2026
GlobeNewswire

Recommended Reading