Ársreikningur Rangárþings ytra 2025


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2025 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl 2026 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð, auk samstarfsverkefna í A hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf, auk samstarfsverkefna í B hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2025 námu rekstrartekjur A og B hluta 4.324 millj. kr. samanborið við 3.859,8 millj. kr. árið 2024.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstrarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 3.713,4 millj.kr., en voru 3.324,8 millj. kr. á árinu 2024.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2025 námu 157,8 millj. kr. samanborið við 165,2 millj. kr. árið 2024. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 458,9 millj. kr. fyrir A og B hluta, en var jákvæð um 376,2 millj. kr. árið 2024.

Veltufé frá rekstri í A og B hluta voru 730,1 millj. kr. Fjárfesting ársins í A og B hluta voru 1.252,9 millj. kr. Handbært fé í árslok voru 293,8 milljónir.

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Rangárþing ytra 2025_fyrri umræða_áritað
GlobeNewswire