REITIR: Nýr leigusamningur milli Íslandshótela og Reita tekur gildi 1. september 2026


Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur vegna hótelanna við Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 taki gildi þann 1. september næstkomandi. Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026.

Um er að ræða umfangsmiklar og vel staðsettar fasteignir sem eru samtals um 26.500 fermetrar að stærð. Eins og tilkynnt var um í apríl 2025 munu Reitir, í samstarfi við Íslandshótel, ráðast í endurbætur á hótelunum með það markmið að auka gæða og aðdráttarafl þeirra. Endurbæturnar munu meðal annars fela í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem eru samtals um 470 talsins.

Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar (NOI) vegna leigusamninganna sé um 620 m.kr. á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 m.kr. eftir það, sem eru óbreytt áætlun frá því sem tilkynnt var um 10. apríl 2025.

Um Íslandshótel

Íslandshótel er stærsta hótelkeðja landsins, sem rekur 17 hótel um allt land undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Tekjur Íslandshótela árið 2025 námu 16,6 ma.kr. og nam eigið fé félagsins um síðustu áramót 25,8 ma.kr.

Um Reiti

Reitir hf. er íslenskt hlutafélag og hefur verið skráð á Nasdaq Iceland síðan 2015. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir félagsins eru í dag rúmlega 150 talsins og safnið er um 490 þúsund fermetrar að stærð. Þar að auki fer félagið með þróun og uppbyggingu á yfir 1.000 íbúðum og 130.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði. Tekjur félagsins námu 18,2 ma. kr. árið 2025 og fjárfestingareignir þess voru metnar á 252 ma. kr. við árslok.


GlobeNewswire

Recommended Reading