Sjóvá: Gerð kaupréttarsamninga á grundvelli kaupréttaráætlunar


Í samræmi við starfskjarastefnu Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur félagið nú gengið frá samningum um kauprétti í félaginu við tiltekna stjórnendur. Samningarnir byggja á samþykkt aðalfundar frá 12. mars 2026.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Kaupverð í kaupréttarsamningunum er 39,12 kr. á hlut sem jafngildir vegnu meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq Iceland síðustu tíu viðskiptadaga fyrir undirritun kaupréttarsamninga. Kaupverðið skal hækka árlega m.t.t. stýrivaxta (meginvaxta) Seðlabanka Íslands eins og þeir eru á hverjum tíma og skal verðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma.
  • Kaupréttarsamningar vegna samtals 9.293.616 hluta eru með þeim hætti að kaupréttur ávinnst jafnt og þétt á þremur árum frá gerð kaupréttarsamnings. Kaupréttarhafi á rétt til þess að leysa til sín áunninn kauprétt samkvæmt samninginum að ávinnslutímabilinu loknu á þremur aðskildum nýtingartímabilum, 1/3 áunnins kaupréttar á fyrsta nýtingartímabili, 1/3 á öðru nýtingartímabili og 1/3 á þriðja nýtingartímabili, á þriggja ára tímabili sem afmarkast í hvert sinn af tíu (10) viðskiptadögum frá því að ársuppgjör eða hálfsársuppgjör fyrir félagið hefur verið birt í kauphöll. Heimilt að fresta nýtingu á fyrsta og/eða öðru nýtingartímabili til næsta nýtingartímabils eða þess þriðja. Að loknu þriðja nýtingartímabili falla allir ónýttir kaupréttir niður.
  • Almennt falla kaupréttir niður ef ráðningarsambandi við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma.
  • Við tilteknar aðstæður er félaginu heimilt að fella niður kaupréttaráætlun og þá kaupréttarsamninga.
  • Virði kaupréttanna var ákvarðað með Black-Scholes útreikningi og nemur 53,4 m.kr. og  rúmast verðmætin innan þeirra laga og reglna sem gilda um slíka kaupauka.

Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0,8% hlutafjár í félaginu.

Upplýsingar um veitta kauprétti til  stjórnenda  eru í viðhengi.

Viðhengi



Attachments

Tilkynning viðskipta HB Tilkynning viðskipta BV Tilkynning viðskipta EÞE Tilkynning viðskipta SB Tilkynning viðskipta ÞP Tilkynning viðskipta SG Tilkynning viðskipta SVH
GlobeNewswire

Recommended Reading