Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 12. maí kl. 15:00. Boðnir verða til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 29 og verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 31.

Áætlaður uppgjörsdagur er 19. maí 2026.

Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.


GlobeNewswire

Recommended Reading