REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 19


Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 19. viku 2026 keyptu Reitir hf. 413.200 eigin hluti að kaupverði kr. 47.553.000  skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverð
4/5/2613:4590.000114,0010.260.000
5/5/2614:107.380115,00848.700
5/5/2614:1092.620115,0010.651.300
6/5/2615:2050.000116,005.800.000
7/5/2609:4750.000115,005.750.000
7/5/2614:4914.700115,001.690.500
8/5/2613:11100.000115,7511.575.000
8/5/2615:138.500115,00977.500
Samtals 413.200 47.553.000

Reitir hafa nú keypt samtals 1.516.900 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 50,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 174.875.800 kr. sem samsvarar 43,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. 

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.

Frá lokum fjórða ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 4.539.900 eigin hluti fyrir 558.066.864 kr.

Reitir eiga nú samtals 3.516.900 eigin hluti, eða um 0,51% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 680.483.100. 

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.


GlobeNewswire

Recommended Reading