REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 22


Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 22. viku 2026 keyptu Reitir hf. 386.727 eigin hluti að kaupverði kr. 45.474.461  skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverð
26/5/2610:09100.000115,0011.500.000
26/5/2615:0531.250115,003.593.750
26/5/2615:185.049115,00580.635
27/5/2613:2550.000117,005.850.000
27/5/2614:43428117,0050.076
28/5/2612:37100.000118,5011.850.000
29/5/2609:5550.000121,006.050.000
29/5/2611:1050.000120,006.000.000
Samtals 386.727 45.474.461

Reitir hafa nú keypt samtals 2.316.242 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 76,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 268.356.216 kr. sem samsvarar 67,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 2.316.242 eigin hluti fyrir 268.356.216 kr.

Reitir eiga nú samtals 4.316.242 eigin hluti, eða um 0,63% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 679.683.758.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.



GlobeNewswire

Recommended Reading