Garðabær leiðréttir hér með fyrri tilkynningu um niðurstöðu úr útboði á skuldabréfaflokknum GARD 11 1. Upplýsingar í fyrri tilkynningu voru rangar og eru hér með leiðréttar.
Garðabær hefur lokið útboði á skuldabréfaflokknum GARD 11 1.
Heildartilboð í GARD 11 1 voru samtals 2.120 m.kr. að nafnvirði. Ákveðið var að taka tilboðum samtals að nafnvirði 1.068 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,95%. Útistandandi fyrir útboð voru 6.233,5 m.kr. Heildarstærð flokksins verður nú 7.301,5 m.kr. að nafnvirði.
Áætlaður uppgjörsdagur er 24. júní 2026.
Niðurstaða útboðsins fer til staðfestingar bæjarstjórnar Garðabæjar.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.