Síminn hf. – Leiðrétting á tillögum stjórnar fyrir hluthafafund 20. ágúst 2026


Síminn hf. birtir hér með leiðréttingu á tillögum stjórnar sem birtar voru með fundarboði til hluthafafundar félagsins fyrr í dag.

Í lið (a) í tillögum stjórnar var ranglega vísað til þess að grein 1.1 í samþykktum félagsins félli brott. Hið rétta er að grein 1.2 fellur brott.

Leiðréttingin hefur engin áhrif á efni tillagnanna eða önnur fundargögn sem birt voru með fundarboðinu.

Leiðrétt tillaga stjórnar fylgir þessari tilkynningu.

Viðhengi



Attachments

Síminn hf. - Tillögur stjórnar fyrir hluthafafund ágúst 2026 (leiðrétt)
GlobeNewswire

Recommended Reading