Árshlutareikningur SEL I hs. 30.06.2026


Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SEL I hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í nóvember árið 2024.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á fyrri hluta ársins 2026 að fjárhæð 4 USD samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins þann 30. júní 2026 námu 45.997.191 USD og hrein eign sjóðsins nam 114 USD samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi 2026, efnahag hans 30. júní 2026 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri hluta ársins 2026, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/kaupholl 

Nánari upplýsingar veitir Per Matts Henje, per.henje@stefnir.is

Viðhengi



Attachments

SEL I hs. árshlutareikningur 30.06.2026
GlobeNewswire