Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2026


Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar – júní 2026

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2026, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. ágúst 2026.

Afkoma tímabilsins var jákvæð um 685 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 26,71% í lok júní.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.   Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi

  • Afkoma tímabilsins var jákvæð um 685 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 26,71% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 702 milljónir króna eða 37% af vaxtatekjum, samanborið við 668 milljónir króna (45% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2025.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 336 milljónum króna á móti 350 milljónum króna á sama tímabili 2025.
  • Eignir námu 34.646 milljónum króna og hafa hækkað um 776 milljónir frá árslokum 2025. Þar af voru útlán 29.104 milljónir samanborið við 27.580 milljónir í árslok 2025.
  • Skuldir námu 27.367 milljónum króna og hækkuðu um 91 milljón frá áramótum.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

 30.6.2026202530.6.2025202430.6.2024
 Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.
Yfirlit um afkomu     
Vaxtatekjur.................................................1.917.7582.741.2871.494.1442.670.4461.533.732
Vaxtagjöld..................................................1.215.8681.524.834826.1681.345.188763.049
Hreinar vaxtatekjur.....................................701.8901.216.453667.9761.325.258770.683
Aðrar rekstrartekjur.....................................467.710807.02045.220743.704426.363
Hreinar rekstrartekjur..................................1.169.6012.023.4731.120.1802.068.9621.197.046
      
Önnur rekstrargjöld.....................................484.2131.432.937877.958764.277106.729
Afkoma ………...........................................685.387590.536242.2211.304.6851.090.317
      
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána lánsloforða og annarra krafna-216.725327.205297.428-276.899-464.170
      
      
Efnahagsreikningur30.6.202631.12.202530.6.202531.12.202430.6.2024
Eignir     
Handbært fé................................................2.647.1053.636.024548.8812.636.8721.737.413
Markaðsskuldabréf.......................................381.982369.202363.297355.927349.979
Aðrar kröfur................................................2.6335.2744.1154.63910.424
Hlutabréf.....................................................405.254376.726369.983332.572317.846
Eignir í virku söluferli...................................214.23164.23136.6621010
Leigueignir..................................................8.4899.277000
Hlutdeildarfélög...........................................1.138.9531.075.1311.066.324968.970969.649
Útlán til viðskiptavina...................................29.103.72327.580.09627.268.62225.060.93124.237.725
Varanlegir rekstrarfjármunir.........................743.490753.806756.056757.442769.619
Eignir samtals..........................................34.645.85933.869.76730.413.94030.117.36328.392.666
      
Skuldir og eigið fé     
Lántökur og skuldabréfaútgáfur.....................25.752.29826.263.41523.081.29823.406.32321.340.487
Óráðstöfuð framlög......................................1.404.367839.841895.085563.986856.557
Leiguskuldir.................................................8.9219.592000
Aðrar skuldir...............................................201.326163.359192.312144.030406.966
Skuldir samtals........................................27.366.91227.276.20624.168.69424.114.33922.604.010
      
Eigið fé     
Eiginfjárframlag...........................................7.800.0007.800.0007.800.0007.800.0007.800.000
Uppsöfnuð afkoma.......................................-521.052-1.206.440-1.554.755-1.796.976-2.011.344
Eigið fé samtals...........................................7.278.9486.593.5606.245.2456.003.0245.788.656
      
Skuldir og eigið fé samtals......................34.645.85933.869.76730.413.94030.117.36328.392.666
      
Sjóðstreymi30.6.2026202530.6.2025202430.6.2024
Handbært fé (-til) frá rekstri.........................-97.743-1.672.410-1.643.113-1.734.762-437.088
Fjárfestingarhreyfingar.................................0-63.104-54.474-11.338-8.202
Fjármögnunarhreyfingar...............................-888.1002.725.121-388.6063.474.0501.260.297
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé................-985.843989.608-2.086.1931.727.950815.007
Gengismunur á handbæru fé.........................-3.0769.544-1.799-18.008-4.524
Handbært fé í ársbyrjun...............................3.636.0242.636.8722.636.872926.930926.930
Handbært fé í lok árs...............................2.647.1053.636.024548.8812.636.8721.737.413
      
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði26,71%23,35%23,86%23,17%24,64%


Viðhengi



Attachments

Árshlutauppgjör 2026.06.30 Fréttatilkynning v árshlutareiknings 2026
GlobeNewswire

Recommended Reading