Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 151126, ÚR 151128 og ÚR 270820. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar árshluta- og ársreiknings félagsins en árshlutauppgjör samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. var birt 31. ágúst 2026.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4200.
Viðhengi