Á stjórnarfundi Haga hf. í dag, þann 8. september 2026, var samþykkt breyting á skipulagi framkvæmdastjórnar Haga. Um langa hríð hefur framkvæmdastjórn Haga verið skipuð forstjóra og þremur framkvæmdastjórum hjá móðurfélagi auk framkvæmdastjóra stærstu rekstrareininga Haga; Bónus, Hagkaups, Olís, Banana og Aðfanga.
Núverandi skipulag framkvæmdastjórnar er ekki í samræmi við starfsemi Haga samstæðunnar í dag, sem hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum árum. Dótturfélögum hefur fjölgað bæði á Íslandi og í Færeyjum, aukin áhersla er á fasteignamál og þróun auk þess sem aðrar nýjar stoðir í rekstri hafa litið dagsins ljós.
Með það að markmiði að samræma skipulag betur við núverandi uppbyggingu samstæðunnar, þar sem ábyrgð og hlutverk eru skýrari, skilvirkni meiri og boðleiðir einfaldari, hefur stjórn gert þá breytingu að í framkvæmdastjórn Haga sitji hér eftir forstjóri, aðstoðarforstjóri/framkvæmdastjóri stefnumótunar & rekstrar og framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Þannig mun framkvæmdastjórn Haga m.a. áfram einbeita sér að stefnu samstæðunnar, forgangsröðun verkefna, ráðstöfun fjármagns og áhættustýringu. Dagleg stjórnun og rekstrarákvarðanir verða eftir sem áður í höndum framkvæmdastjóra hverrar rekstrareiningar, sem og stuðningur við sameiginlegt starf samstæðu eins og við á.
Framkvæmdastjórn Haga er því hér eftir skipuð Finni Oddssyni, forstjóra, Magnúsi Magnússyni, aðstoðarforstjóra/framkvæmdastjóra stefnumótunar & rekstrar og Guðrúnu Evu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, fo@hagar.is