Brim hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09


Brim hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki BRIM 29 09

Brim hf. („BRIM“) hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki  BRIM 29 09. Heildareftirspurn í skuldabréfaflokkinn nam kr. 12.000.000.000. Seld voru skuldabréf á pari að nafnverði kr. 9.000.000.000.

Skuldabréfaflokkurinn BRIM 29 09 er með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 3 mánaða REIBOR-vöxtum að viðbættu 1,30% vaxtaálagi. Greiðslur vaxta eru á þriggja mánaða fresti, fyrst þann 22. desember 2026.  Ein greiðsla höfuðstóls verður á lokagjalddaga. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum.


Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 22. september nk. og fyrirhugað er að skrá skuldabréfaflokkinn á Aðalmarkað Nasdaq Iceland eigi síðar en 6 mánuðum frá útgáfudegi. Nasdaq Iceland mun tilkynna töku til viðskipta með a.m.k. eins dags fyrirvara.


Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu, og útgáfu skuldabréfanna og fyrirhugaða töku þeirra til viðskipta á skipulegan verðbréfamarkað.

Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.



Nánari upplýsingar veita:

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is

Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs., ingajona@brim.is



GlobeNewswire

Recommended Reading

  • Brim hf.: Útboð á nýjum skuldabréfaflokki
  • Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2026