Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 28. október 2026


Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 28. október 2026.

Skuldabréfaflokkar í útboði og hámarksfjárhæðir

FlokkurHámarksnafnverð
EIK 29 1440 milljónir kr.
EIK 1202661.500 milljónir kr.

Skuldabréfaflokkurinn EIK 29 1 er óveðtryggður og ber breytilega vexti sem nema REIBOR + 85 punkta álag. Áður hefur verið útgefið fyrir 4.560m að nafnvirði í flokknum. Lokagjalddagi er 28. mars 2029.

Skuldabréfaflokkurinn EIK 120266 er óuppgreiðanlegur, ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur afborgana og vaxta á sex (6) mánaða fresti með lokagjalddaga 2066. Áður hefur verið gefið út fyrir 5.800 m.kr. að nafnvirði í flokknum.

EIK 120266 deilir veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins EIK 100327, EIK 150531, EIK 141233, EIK 050734, EIK 150536, EIK 100346, EIK 161047 og EIK 050749 ásamt tilteknum lánum frá fjármálastofnunum.

Fyrirkomulag útboðs

Fyrirkomulag útboðsins í EIK 29 1 verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á lægsta samþykkta verði.

Fyrirkomulag útboðsins í EIK 120266  verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni.

Eik áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum, eða taka tilboðum að hluta.

Áætlaður uppgjörsdagur vegna útboðsins er 4. nóvember 2026.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu.

Tilboðum skal skilað á netfangið: skuldabrefamidlun@arionbanki.is þann 28. október 2026 fyrir kl. 16:00.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980.


GlobeNewswire

Recommended Reading