Reitum hefur borist tilkynning frá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) þess efnis að Borgartún 37 hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu en mat tilboða byggðist meðal annars á verði, stærð, staðsetningu og öryggi.
Tillaga Reita varðandi Borgartún 37 gerir ráð fyrir að húsið verði stækkað um 700 fermetra og stærð þess verði um 7.300 fermetrar að framkvæmd lokinni. Gert er ráð fyrir um 100 hjúkrunarrýmum í húsnæðinu.
Áætlaðar leigutekjur í tilboði Reita nema um 440 m. kr. á ársgrunni, en ákvörðun um endanlega samningsgerð er háð því að samkomulag náist við FSRE um skilmála leigusamnings.
Frekari upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, á netfanginu gudni@reitir.is eða í síma 575 9000 eða 624 0000.