Stjórn Skaga hf. (Skagi) hefur samþykkt að breyta skipulagi á samstæðu félagsins sem felur í sér frekari aðgerðir í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Það umbreytingarferli sem hófst árið 2023 hefur skilað afgerandi viðsnúningi á tryggingarekstri VÍS sem og nýjum tekjustoðum með hraðri uppbyggingu á fjármálastarfsemi í gegnum innri- og ytri vöxt. Með einföldun og frekari aðgerðum til hagræðingar er brugðist við núverandi aðstæðum í rekstrarumhverfi samstæðunnar með það að leiðarljósi að styrkja rekstur hennar og leggja grunn að sókn til framtíðar.
Einföldun á skipulagi samstæðu
Með breyttu skipulagi er stefnt að því að færa starfsemi Skaga til VÍS trygginga (VÍS). Horft er til þekktra fyrirmynda í nágrannalöndum, með hreinu eignarhaldsfélagi efst í samstæðunni, en sú útfærsla ræðst af samtali við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“). Þá er gert ráð fyrir að önnur félög samstæðunnar færist undir VÍS tryggingar með þeim hætti að Fossar verði dótturfélag VÍS og ÍV verði dótturfélag Fossa. Stjórn hefur þegar hafið undirbúning að breyttu skipulagi sem kemur til framkvæmda á komandi mánuðum með hefðbundnum fyrirvörum um samþykki hluthafa og eftirlitsaðila. Stjórn og forstjóri Skaga, Haraldur I. Þórðarson, hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem forstjóri félagsins en Haraldur mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar ásamt því að vera félaginu innan handar næstu misseri. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana í nýju skipulagi frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum.
ÍV verður dótturfélag Fossa og eignastýringarþjónusta sameinuð
Samhliða þessum breytingum er einnig horft til þess að ná fram auknu hagræði og auknum slagkrafti með breyttu skipulagi á fjármálastarfsemi samstæðunnar. Sem fyrr segir er fyrirhugað að ÍV verði dótturfélag Fossa og að samhliða því verði eignastýringarþjónusta félaganna sameinuð hjá ÍV, líkt og þekkist hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Breytingarnar miða að því að draga úr kostnaði, laga starfsemina að núverandi markaðsaðstæðum og styrkja félögin til vaxtar.
Umtalsvert lægri kostnaðargrunnur
Með fyrrgreindum breytingunum næst fram einföldun í starfsemi samstæðunnar sem mun skila sér í umtalsverðu kostnaðarhagræði. Gert er ráð fyrir að skipulagsbreytingar á fyrirkomulagi samstæðu, lækkun stjórnunarkostnaðar, fækkun stöðugilda ásamt tilfærslu verkefna og starfa muni skila sér í 270 milljóna króna lækkun kostnaðar á ársgrundvelli þegar þær eru að fullu komnar til framkvæmda. Samhliða þessum skipulagsbreytingum er horft til uppgreiðslu og endurfjármögnunar útistandandi skuldagerninga, þ.m.t. víkjandi skuldabréfs að hluta, sem mun lækka kostnað um allt að 160 milljónir króna á ársgrundvelli. Fyrr á árinu, 28. apríl síðastliðinn, voru kynntar aðgerðir til einföldunar sem námu 180 milljónum króna í lækkun kostnaðar og að teknu tilliti til þeirra mun kostnaðargrunnur samstæðunnar lækka samtals um 610 milljónir á ári. Aðgerðir ársins eru því að skila verulegu árlegu kostnaðarhagræði.
Stjórnarformaður Skaga hf., Stefán Héðinn Stefánsson:
„Við höfum náð góðum árangri á mörgum sviðum í umbreytingu félagsins, sérstaklega í rekstri tryggingafélagsins og uppbyggingu eignastýringar. Krefjandi markaðsaðstæður hafa hins vegar haft veruleg áhrif á ávöxtun fjáreigna tryggingafélagsins sem og rekstur fjármálastarfseminnar og möguleikum til að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með. Sú samþjöppun á fjármálamarkaði sem væntingar stóðu til hefur ekki gengið eftir og forsendur fyrir vexti því þróast með öðrum hætti en gert var ráð fyrir. Með breytingunni nú viljum við laga félagið enn frekar að aðstæðum á markaði, við sköpum félögunum betri forsendur til að verða enn öflugri, nýtum sameiginlega styrkleika og eflum þjónustuna við viðskiptavini enn frekar. Nánara samstarf og hagkvæmari rekstur munu styrkja samkeppnisstöðu þeirra og auka svigrúm til sóknar. Við þetta tækifæri vil ég fyrir hönd stjórnar þakka Haraldi I. Þórðarsyni kærlega fyrir gott samstarf við uppbyggingu, þróun og mótun félagsins, en hann hverfur nú úr stóli forstjóra en starfar með okkur áfram í stjórnum dótturfélaga og styður áframhaldandi vegferð þeirra. Guðný Helga Herbertsdóttir, sem leitt hefur umbreytingarferli VÍS trygginga með frábærum árangri, mun nú leiða samstæðuna og væntum við mikils af henni í því hlutverki.”
Fráfarandi forstjóri Skaga hf., Haraldur I. Þórðarson:
„Undanfarin ár hafa verið viðburðarík hjá samstæðu Skaga og við höfum náð eftirtektarverðum árangri á mörgum sviðum starfseminnar. Á sama tíma hefur þróun fjármálamarkaðar verið önnur en við væntum og rekstrarumhverfi fjárfestinga- og fjármálastarfsemi reynst krefjandi. Við þessar aðstæður er ábyrgðarhluti að endurmeta áherslur og skipulag með langtímahagsmuni félagsins og haghafa þess að leiðarljósi. Ég er sannfærður um að þær breytingar sem nú er ráðist í muni styrkja samstæðuna til framtíðar og skapa forsendur fyrir áframhaldandi verðmætasköpun. Ég lít til baka með stolti yfir því sem við höfum áorkað á undanförnum árum og hlakka til að leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar Skaga í gegnum stjórnarstörf og sem hluthafi.“
Forstjóri VÍS trygginga hf., Guðný Helga Herbertsdóttir:
„Ég tek við þessu nýja hlutverki með mikla trú á framtíð samstæðunnar og hlakka til að leiða hana áfram. Í félögunum býr mikil þekking, öflug þjónusta og verðmæt viðskiptasambönd sem við ætlum að byggja á. Við munum sækja fram af krafti og um leið gæta aðhalds í rekstri. Með nánara samstarfi félaganna og hagkvæmni í rekstri verðum við vel búin undir framtíðina og tilbúin að grípa tækifærin þegar markaðsaðstæður batna.”
Nánari upplýsingar veita:
Stefán H. Stefánsson, stjórnarformaður Skaga. Netfang: stjorn-stefan@skagi.is
Haraldur I. Þórðarson, fráfarandi forstjóri Skaga. Netfang: haraldur@skagi.is og
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS. Netfang: gudnyhh@vis.is
Viðhengi