Einföldun á skipulagi og aukið hagræði
Tryggingastarfsemin sögulega sterk og brugðist við krefjandi markaðsaðstæðum í fjármálastarfsemi
Afkoma 3F og fyrstu 9M hjá samstæðu Skaga hf.
Helstu lykiltölur 3F og 9M 2026
| 3F 2026 | 3F 2025 | 9M 2026 | 9M 2025 | |
| Samstæða | ||||
| Hagnaður eftir skatta, m.kr. | 812 | 717 | 1.207 | 337 |
| Hagnaður á hvern hlut, kr. | 0,43 | 0,38 | 0,64 | 0,18 |
| Hagnaður af grunnrekstri fyrir skatta, m.kr. | 1.455 | 1.327 | 2.555 | 2.373 |
| Arðsemi eigin fjár, á ársgrundvelli | 14,2% | 13,2% | 7,1% | 2,1% |
| Eigið fé samstæðu, m.kr. | 23.125 | 22.128 | ||
| Gjaldþolshlutfall | 1,35 | 1,27 | ||
| Tryggingastarfsemi | ||||
| Vöxtur tekna af vátryggingasamningum | 8,0% | 9,6% | 7,4% | 9,8% |
| Samsett hlutfall | 80,9% | 82,4% | 87,0% | 87,7% |
| Afkoma vátryggingasamninga, m.kr. | 1.731 | 1.471 | 3.315 | 2.920 |
| Fjármálastarfsemi | ||||
| Hreinar tekjur, m.kr. | 581 | 700 | 1.961 | 2.212 |
| Afkoma fyrir skatta, m.kr. | -58 | 29 | -172 | 2 |
| Eignir í stýringu (e. AuM), ma.kr. | 245 | 236 | ||
| Fjárfestingar | ||||
| Fjárfestingatekjur, m.kr. | 237 | 443 | 999 | 431 |
| Ávöxtun fjárfestingareigna | 0,5% | 0,9% | 2,0% | 0,9% |
| Hreinar tekjur af fjárfestingum, m.kr. | -343 | -246 | -835 | -1.482 |
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri:
„Í gær voru tilkynntar umfangsmiklar breytingar á samstæðunni sem gert er ráð fyrir að skili um 430 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda. Sá sparnaður bætist við þær 180 milljónir króna sem tilkynnt var um í öðrum ársfjórðungi. Samanlagt er því gert ráð fyrir að breytingarnar skili um 610 milljóna króna sparnaði á ári. Með breytingunum er brugðist við erfiðum markaðsaðstæðum með því að þétta raðirnar, skýra ábyrgð og draga verulega úr kostnaði. Þannig styrkjum við reksturinn og búum okkur undir að grípa tækifærin þegar markaðsaðstæður batna á ný.
Rekstur samstæðu Skaga á þriðja ársfjórðungi var á heildina litið góður. Afkoma af grunnrekstri jókst á milli ára og var hún borin uppi af afar sterkum tryggingarekstri líkt og undanfarna fjórðunga. Afkoma af fjármálastarfsemi samstæðunnar var neikvæð sem skýrist af þungu rekstrarumhverfi. Afkoma af fjárfestingum litaðist jafnframt af krefjandi markaðsaðstæðum sem kemur að mestu fram í neikvæðri ávöxtun skráðra hlutabréfa. Hagnaður á fjórðungnum nam 812 m.kr. eftir skatta og arðsemi eigin fjár var 14,2% á ársgrundvelli. Á fyrstu níu mánuðum ársins nam hagnaður 1.207 m.kr. eftir skatta og ríflega þrefaldaðist á milli ára.
Þjónustan drífur vöxt og besta árangur í nær tvo áratugi
Það er áframhaldandi kraftur í starfsemi VÍS. Niðurstaða fjórðungsins er sú besta í nær tvo áratugi og staðfestir að sú vegferð sem við hófum árið 2023 er að skila sér. VÍS hefur vaxið hraðar en markaðurinn í heild í um tvö ár, viðskiptavinum heldur áfram að fjölga og kostnaðarhlutfallið hefur aldrei verið jafn lágt. Samsett hlutfall fjórðungsins var 80,9%, tekjur af vátryggingasamningum uxu um 8% og kostnaðarhlutfallið var 14,9%. Þessi árangur byggir ekki síst á skýrri stefnu um að setja viðskiptavini og þjónustu í forgang. Við sjáum þessa áherslu skila sér í aukinni ánægju viðskiptavina og kröftugum vexti. Á næstu vikum og mánuðum munum við kynna nýjungar sem gera viðskiptavinum enn auðveldara fyrir að vera í viðskiptum við VÍS.
Dregið úr vægi hlutabréfa í fjárfestingasafni
Ávöxtun fjárfestingareigna VÍS var 0,5% á fjórðungnum samanborið við -0,1% ávöxtun viðmiðs og 2,0% á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 0,6% ávöxtun viðmiðs. Á fjórðungnum skilaði skuldabréfasafn félagsins jákvæðri ávöxtun en lækkanir á hlutabréfamörkuðum höfðu neikvæð áhrif. Jákvæð ávöxtun var á óskráðum hlutabréfum en þar ber helst að nefna hækkun á virði Bláa lónsins að fjárhæð 63 m.kr. Dregið var áfram úr vægi skráðra hlutabréfa á fjórðungnum sem námu 11,6% af safninu í lok tímabilsins en auk þess lækkaði vægi óskráðra hlutabréfa í fjórðungnum. Skráð og óskráð hlutabréf telja í lok fjórðungs 24,4%.
Brugðist við krefjandi markaðsaðstæðum
Afkoma fjármálastarfseminnar var undir væntingum á fjórðungnum. Hreinar tekjur í fjármálastarfsemi námu 581 m.kr. og tap fyrir skatta nam 58 m.kr. Tekjur af kjarnastarfsemi námu 616 m.kr. á fjórðungnum og stóðu nánast í stað á milli ára.
Markaðsaðstæður voru áfram krefjandi með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á tekjur Fossa, einkum af fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum auk neikvæðra fjármunatekna. Hreinar rekstrartekjur bankans hafa dregist saman 23% á fyrstu níu mánuðum ársins með tilheyrandi áhrifum á afkomu bankans. Afkoma Fossa er neikvæð um 263 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og því hefur bankinn gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða undanfarin misseri sem byrjuðu að skila kostnaðarlækkun á þriðja ársfjórðungi. Rekstrarkostnaður Fossa og ÍV var samanlagt 56 m.kr. lægri á fjórðungnum en á sama tíma í fyrra. Með slíkum aðgerðum hefur verið lagður grunnur að lægri rekstrarkostnaði í fjármálastarfsemi til að mæta betur núverandi umhverfi þar sem félögin eru næm fyrir markaðsaðstæðum.
Fossar juku markaðshlutdeild sína á hlutabréfamarkaði og voru með stærstu hlutdeild í miðlun í kauphöll á fjórðungnum sem endurspeglar sterka stöðu markaðsviðskipta bankans. Efnahagur Fossa hefur dregist saman samhliða minni ásókn í verðbréfalán en bankinn er með sterka eiginfjárstöðu og gott svigrúm til stækkunar.
ÍV í fremstu röð á þremur árum
Nú eru þrjú ár liðin frá stofnun SIV sem sameinaðist ÍV á síðasta ári. Á aðeins þremur árum hefur okkur tekist að byggja upp öflugt eignastýringarfélag sem þegar er farið að skera sig úr á markaðnum. Íslensk verðbréf hafa vaxið hraðar en helstu samkeppnisaðilar undanfarin misseri og styrkt stöðu sína verulega á skömmum tíma. Þrátt fyrir krefjandi umhverfi hefur reksturinn gengið vel, með 18% aukningu þóknanatekna á fyrstu níu mánuðum ársins og 91 m.kr. hagnaði fyrir skatta samanborið við tap á sama tímabili ári áður. Á fjórðungnum var bætt í fjölbreytt vöruframboð félagsins þegar skuldabréfasjóðurinn ÍV Norræn fyrirtækjaskuldabréf var settur á laggirnar. ÍV Erlend hlutabréf hefur haldið toppsæti sínu meðal sjóða innlendra rekstrarfélaga en frá áramótum hefur sjóðurinn skilað 14,6% ávöxtun. Eignir í stýringu í fjármálastarfsemi námu 245 ma.kr. við lok tímabilsins og jukust um 3,8% á milli ára.“
Greiðslur til hluthafa
Skagi hélt áfram að skila fjármagni til hluthafa á fjórðungnum með endurkaupum á eigin bréfum fyrir samtals 248 m.kr. Á árinu nema endurkaup samtals 1.281 m.kr. og arðgreiðslur 758 m.kr. eða 2.039 m.kr. samanlagt. Traust fjárhagsstaða gerir Skaga kleift að skila fjármunum til hluthafa samhliða því að viðhalda traustri gjaldþolstöðu. Gjaldþolshlutfall samstæðunnar var 1,35 í lok tímabilsins.
Kynningarfundur
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október, klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri, mun kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum og kynningarefni fundarins á fjárfestasíðu félagsins.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri, í netfanginu gudnyhh@vis.is.
Viðhengi
- Q3 2026 - Fréttatilkynning Skaga
- Q3 2026 - Fjárfestakynning Skaga
- Árshlutareikningur samstæðu Skaga 30.9.2026