Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa


Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokkunum EIK 29 1 og EIK 120266.

Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 680 m.kr. í EIK 29 1 og 900 m.kr. í EIK 120266. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 440 m.kr. í EIK 29 1 á genginu 98,9336 og tilboðum að nafnvirði 900 m.kr. í EIK 120266 á ávöxtunarkröfunni 4,05%.

Niðurstaða útboðs:

FlokkurEIK 29 1EIK 120266
Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur4.11.20264.11.2026
Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)440 m.kr.900 m.kr.
Samþykkt (verð / ávöxtunarkrafa)98,93364,05%
Fjöldi innsendra tilboða53
Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)680 m.kr.900 m.kr.
Fjöldi samþykktra tilboða43
Vegið meðaltal innsendra tilboða (verð / ávöxtunarkrafa)98,96124,042%
Boðhlutfall1,551,00

Þetta var fjórða útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 29 1 og er heildarstærð flokksins 5.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið og er hámarksstærð flokksins náð.

Þetta var fimmta útboðið í EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 6.700 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980


GlobeNewswire

Recommended Reading