Jón Kolbeinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Reitum. Samhliða því hefur verið ákveðið að sameina þróunar- og framkvæmdasvið í eitt svið. Með sameiningunni er öll starfsemi frá þróun til framkvæmda og viðhalds færð undir eina stjórn. Markmiðið er að einfalda ákvarðanatöku, nýta betur sérþekkingu innan félagsins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu þróunarverkefna Reita.
Birgir Þór Birgisson, framkvæmdastjóri þróunar, mun stýra sameinuðu sviði og verður framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda. Jafnframt verður til ný staða forstöðumanns framkvæmda innan sviðsins sem Gunnar Páll Stefánsson mun gegna. Gunnar Páll kemur til Reita frá Cowi á Íslandi og hefur víðtæka reynslu af stærri framkvæmdaverkefnum.
Reitir þakka Jóni Kolbeini fyrir mjög gott samstarf og framlag hans til félagsins á síðustu árum.
Upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, á netfanginu gudni@reitir.is eða í síma 575 9000 og 624 0000.