Ábyrgur rekstur og góð þjónusta í krefjandi umhverfi - Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar


Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar í dag miðvikudaginn 11. nóvember. Í áætluninni er lögð áhersla  á ábyrgan rekstur Mosfellsbæjar í krefjandi efnhagsumhverfi ásamt því að tryggja gott þjónustustig.

Rekstrartekjur ársins 2027 eru áætlaðar 25.170 m.kr og rekstrargjöld 22.359 m.kr. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsgjalda er áætluð 1.987 m.kr. og veltufé frá rekstri 2.267 m.kr.

Helstu tölur úr fjárhagsáætlun 2027:

  • Rekstrarafgangur A- og B-hluta er áætlaður 531 m.kr.
  • Rekstrarafgangur A hluta er áætlaður 266 m.kr.
  • Veltufé frá rekstri A- og B-hluta er áætlað 2.267 m.kr. eða 9,0% af heildartekjum.
  • Skuldaviðmið A- og B-hluta er áætlað 109% í árslok 2027.
  • Útsvar verður áfram 14,97%.
  • Álagningarhlutfall fasteignaskatts A lækkar úr 0,190% í 0,187%.
  • Gjaldskrár hækka almennt um 2,5%.
  • Fjárfestingar eru áætlaðar 4.396 m.kr.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi stöðugri íbúafjölgun og að íbúar Mosfellsbæjar verði orðnir tæplega 14.000 á árinu 2027. 

„Í þessari fyrstu fjárhagsáætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggjum við áherslu á traustan og ábyrgan rekstur í afar krefjandi rekstrarumhverfi. Verðbólga, launahækkanir og fjármagnskostnaður hafa sett mikinn þrýsting á rekstur sveitarfélaga. Við viljum halda álögum hóflegum og styðja við íbúa og fjölskyldur í sveitarfélaginu með lágum þjónustugjöldum, hóflegum gjaldskrárhækkunum og lækkun fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði. Jafnframt leggjum við áherslu á áframhaldandi uppbyggingu og viðhald skólahúsnæðis og annarra mikilvægra innviða. Með skýrri forgangsröðun og hagkvæmari rekstri viljum við tryggja góða þjónustu og ábyrgan rekstur til framtíðar,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.

Gjaldskrárhækkanir takmarkaðar við 2,5%
Gjaldskrár hækka almennt um 2,5% til samræmis við ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þannig sýnir Mosfellsbær ásamt öðrum sveitarfélögum ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og tekur virkan þátt í að bæta stöðuna.

Álagningarhlutfall fasteignaskatts A lækkar úr 0,190% í 0,187%. Með því er komið til móts við hækkun fasteignamats og er áætlað að fasteignaskattur hækki að meðaltali um 2,1%. Hefði álagningarhlutfall verið óbreytt hefði hækkun numið um 3,7%. 

Leikskólagjöld verða með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu og 12 mánaða börnum verður áfram tryggð leikskólavistun að hausti.

Fjárfesting í innviðum
Fjárfestingar ársins eru áætlaðar 4.396 m.kr. Unnið verður markvisst að umfangsmiklum endurbótum innviða í eldri hverfum, gatna- og veituframkvæmdum sem eru stærstu fjárfestingar ársins.

Önnur stór verkefni eru undirbúningur og hönnun nýs leikskólahúsnæðis miðsvæðis í bænum. Markvissar endurbætur á húsnæði og lóðum grunnskóla sveitarfélagsins, þar sem LED væðing og bætt loftræsing húsnæðis verður í forgangi. Framkvæmdir munu hefjast við nýja þjónustu- og aðkomubyggingu á Íþróttasvæðinu að Varmá. Áframhaldandi uppbygging í Álafosskvos verður tryggð með það að markmiði að styrkja svæðið sem lifandi menningarreit og áfangastað fyrir íbúa og gesti. Í Hlégarði verða gerðar endurbætur á þaki og bílastæðum.

Hagræðing í rekstri
Í áætluninni er gert ráð fyrir 270 m.kr. hagræðingu í rekstri sem er um 1,2% af rekstrarútgjöldum ársins. Ráðgjafafyrirtækið ARCUR vinnur að heildstæðri úttekt á fjárhag og rekstri Mosfellsbæjar og verða niðurstöður hennar nýttar við mótun aðgerða sem ráðist verður í á fyrsta ársfjórðungi ársins 2027. Markmiðið vinnunnar er að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri samhliða því að standa vörð um þjónustu við íbúa.

„Þegar hefur verið farið í aðgerðir til að draga úr kostnaði en fjárhagsstaðan kallar á frekari hagræðingu. Í áætluninni er gert ráð fyrir 270 m.kr. hagræðingu og nú stendur yfir heildstæð úttekt á rekstrinum. Við munum sjá afrakstur þeirrar vinnu á næstu vikum og í framhaldinu verður farið í frekari hagræðingar aðgerðir.  Markmið vinnunnar er að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri en standa um leið vörð um þjónustu við íbúa,“ segir Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri.

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar verður tekin til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar 9. desember n.k.  

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri í síma 525-6700

Viðhengi



Attachments

Greinargerð með fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2027-2030 - fyrri umræða í bæjarstjórn 111126 Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2027-2030 - fyrri umræða í bæjarstjórn 111126
GlobeNewswire