Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2026


Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2026

  • Vörusala var 154 m€ á fjórðungnum samanborið við 111 m€ á þriðja fjórðungi 2025
  • Hagnaður var 54 m€ á fjórðungnum samanborið við 29 m€ á þriðja fjórðungi 2025
  • EBITDA var 48 m€ og EBITDA hlutfall 31,4%
  • Eignir hafa hækkað um 250 m€ frá áramótum og voru 1.248 m€ í lok tímabilsins
  • Eigið fé þann 30. september 2026 var 610 m€ og eignfjárhlutfall 48,9%
  • Lýsi hf. er nú hluti af samstæðu Brims hf.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Aflabrögð voru góð á þriðja fjórðungi ársins og vinnsla afurða gekk að vonum. Hagnaður á fjórðungnum var óvenju mikill en þar gætir áhrifa sölu félagsins á hlutdeildarfélaginu Polar Seafood Denmark. Það sem af er af árinu hefur rekstrarhagnaður aukist og þegar horft er um öxl til liðinna ára sést að rekstrarhagnaður hefur aukist jafnt og þétt þrátt fyrir samdrátt aflaheimilda. Sama má segja um heildareignir félagsins og eigið fé. Að mínum dómi eru þetta vísbendingar um góðan rekstur og traustan efnahag.

Brim hefur markað þá stefnu að vera virkur þátttakandi í samfélaginu og leggja sitt af mörkum um að efla það og bæta. Í hópi yfir 800 starfmanna félagsins eru einstaklingar frá yfir 25 þjóðlöndum sem tala ólík móðurmál.  Í áraraðir hefur félagið lagt sitt af mörkum til að auðvelda starfsfólki af ólíkum uppruna að laga sig að íslensku samfélagi með því að bjóða upp á íslenskukennslu sem starfsfólkið hefur verið þakklátt fyrir. Reynsla af þessu starfi er góð og sýnir hversu mikilvægt það er fyrir fyrirtæki og atvinnulíf að leggja sitt lóð á vogarskálina. Til að undirstrika hlutverk okkar allra við að efla stöðu íslenskunnar í samfélagi okkar hefur Brim í tilefni af Degi íslenskrar tungu boðað til opins samtals við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, um íslenskuna sem fram fer í Iðnó i dag. Er það von okkar hjá Brimi að um leið og framtakið efli starfsfólk félagsins til dáða þá opni það augu sem flestra fyrir mikilvægi íslenskrar tungu við að auka samheldni þjóðarinnar og þannig styrkja og bæta okkar góða samfélag.“

Starfsemin á 3F 2026

Afli bolfiskskipa félagsins nam 9.600 tonn á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 12.400 tonn á sama tímabili í fyrra. Bolfiskskipum fækkaði um eitt frá fyrra ári og einnig var frystitogarinn Sólborg frá veiðum í tvær vikur í september vegna vélarupptektar. Veiðar á þorski minnkuðu á tímabilinu en veiðar á gullkarfa voru umtalsvert meiri en árið áður auk þess sem Þerney veiddi 3.500 tonn af makríl á þriðja fjórðungi 2025. Í Norðurgarði var unnið úr 5.500 tonnum af hráefni á tímabilinu, samanborið við 6.200 tonn í Norðurgarði og Hafnarfirði á sama tímabili í fyrra. Verð á helstu botnfiskafurðum hafa verið góð og hærri en þau voru á sama tíma í fyrra.

Fyrsta makrílafla ársins var landað á Vopnafirði 9. ágúst og vertíðinni lauk 4.september. Alls veiddust tæp 6.000 tonn. Markaðir voru mjög sterkir og fór um 97% aflans til manneldis. Sala makrílafurða hefur gengið vel. Kolmunnaveiðar hófust um miðjan ágúst og að lokinni makrílvertíð bættust við veiðar á norsk-íslenskri síld og íslenskri sumargotssíld. Kolmunnaafli fjórðungsins nam um 12.200 tonnum og síldarafli um 5.700 tonnum. Sem fyrr fór uppistaða kolmunnans í mjöl- og lýsisvinnslu, en rúm 130 tonn voru fryst til manneldis. Félagið leggur áherslu á að auka hlut manneldisvinnslu og sér tækifæri í frystum kolmunnaafurðum bæði á Asíu- og Evrópumarkaði. Allir síldarmarkaðir voru sterkir, verð há og salan gekk vel. Aukin áhersla var lögð á flök bæði fyrir Evrópu- og Asíumarkað. Verð á fiskimjöli og lýsi hélt áfram að hækka á fjórðungnum, sem skilaði sér í góðu verðmæti bæði kolmunna- og síldarafurða.

Þriðji ársfjórðungur hjá Lýsi hf. einkenndist af áframhaldandi hækkunum á hráefni vegna áhrifa El Ninjo. Hagstæð innkaup í upphafi árs skiluðu sér inn í fjórðunginn og söluverð afurða hækkaði.

Rekstur

Seldar vörur námu á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 395 m€ samanborið við 295 m€ árið áður.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 108 m€ eða 27,4% af rekstrartekjum, en var 69 m€ eða 23,2% árið áður.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 20 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 en voru neikvæðir um 4 m€ á sama tímabili í fyrra. Munar þar mestu um söluhagnað eignarhluta að fjárhæð 28 m€.

Hagnaður fyrir tekjuskatt á fyrstu níu mánuðum ársins nam 114 m€, samanborið við 48 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Tekjuskattur fyrir sama tímabil nam 17 m€, en var 9 m€ árið áður. Hagnaður tímabilsins varð því 96 m€ en var 40 m€ árið áður.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 1.248 m€ í lok 3F 2026. Þar af voru fastafjármunir 849 m€ og veltufjármunir 399 m€. Eigið fé nam í lok tímabilsins 610 m€ og var eiginfjárhlutfall 48,9%, en var 52,3% í lok árs 2025. Heildarskuldir félagsins voru 638 m€ í lok fjórðungsins og hækkuðu um 162 m€ frá áramótum.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 59 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins, en var 23 m€ á sama tíma árið 2025. Fjárfestingarhreyfingar voru jákvæðar um 30 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 5 m€. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 2 m€. Yfirtekið handbært fé nam 13 m€. Handbært fé hækkaði því samtals um 98 m€ og var 170 m€ í lok tímabilsins.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrstu níu mánuði árins 2026 (1 evra = 143,37 ísk) voru tekjur 56,6 ma. króna, EBITDA 15,5 ma. króna og hagnaður 13,8 ma. króna. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. september 2026 (1 evra = 137 ísk) voru eignir samtals 171,0 milljarðar króna, skuldir 87,4 milljarðar og eigið fé 83,6 milljarðar.

Hluthafar
Lokaverð hlutabréfa 30. september 2026 var 92,5 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 180,7 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.628.

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 19. nóvember 2026. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

Fjárhagsdagatal

Fjórði ársfjórðungur 25. febrúar 2027

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.

Viðhengi



Attachments

Brim Árshlutareikningur 30.09.2026 Brim fjarfestakynning F3 2026 Afkoma Brims hf 3F 2026
GlobeNewswire

Recommended Reading