Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 47 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 283.548 eigin hluti að kaupverði 12.460.999 kr. eins og nánar er greint frá hér:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)
16.11.202610:27:2768843,8030.134
16.11.202610:54:5430.30043,801.327.140
17.11.202609:37:5544.57643,801.952.429
19.11.202615:15:597.98444,00351.296
20.11.202611:16:08200.00044,008.800.000
  283.548 12.460.999


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.

Sjóvá átti 5.979.262 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 6.262.810 eigin hluti eða sem nemur 0,54% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is.


GlobeNewswire

Recommended Reading