Ásar hf. – Brynja Baldursdóttir lætur af störfum hjá Greiðslumiðlun Íslands


Brynja Baldursdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands. Félagið varð hluti af samstæðu Ása í júlí, en Brynja hefur gegnt starfi forstjóra frá 2021. Unnið er að ráðningu eftirmanns hennar, en María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, mun sinna starfinu þangað til.

„Ég vil þakka Brynju fyrir gott samstarf undanfarna mánuði. Undir hennar stjórn hefur reksturinn gengið vel og félagið ráðist í umfangsmikla stafræna umbreytingu með tilheyrandi lækkun rekstrarkostnaðar og bættum árangri í innheimtu. Hún leiddi félagið sömuleiðis í gegnum kaup Ása með góðum árangri,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása.

„Ég er þakklát fyrir tímann hjá Greiðslumiðlun Íslands og stolt af þeim árangri sem við höfum náð saman. Ég vil þakka frábæru samstarfsfólki fyrir samstarfið og óska þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi innan Ása,“ segir Brynja Baldursdóttir.

Ásar eru vaxandi samstæða þjónustufyrirtækja sem byggja á stafrænum grunni, trausti og öryggi. Helstu eignir Ása eru Síminn, Öryggismiðstöðin, OK, Greiðslumiðlun Íslands og Billboard.


GlobeNewswire

Recommended Reading