Samningar um viðskiptavakt
Kvika banki hf. hefur gert samninga við Arion banka hf., Landsbankann hf. og Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf í flokknum KVIKA CB 32. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með skuldabréfið á eftirmarkaði og stuðla að virkri verðmyndun. Viðskiptavakt hefst 30.nóvember 2026.
Viðskiptavakar munu daglega fyrir opnun markaðar setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfið í viðskiptakerfi kauphallarinnar. Lágmarksfjárhæð tilboða miðast við útistandandi nafnverð flokksins í samræmi við töflu 1.
| Útistandandi nafnverð KVIKA CB 32 | Lágmarks kaup- og sölutilboð |
| 0 – 10 ma.kr. | 60 m.kr. |
| Yfir 10 ma.kr. | 80 m.kr. |
Tafla 1
Viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Hámarksfjárhæð daglegra viðskipta hvers viðskiptavaka nemur þrefaldri lágmarksfjárhæð tilboða samkvæmt töflu 1. Kaup og sala teljast saman við útreikning hámarksfjárhæðarinnar.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða skal í upphafi vera 0,35% en miðast síðan við þann tíma sem eftir er til lokagjalddaga samkvæmt töflu 2.
| Árafjöldi til lokagjalddaga | Hámarksmunur kaup- og sölutilboða |
| 0 - 6 mánuðir | Ekki skilgreint |
| 6 mánuðir - 2 ár | 0,20% |
| 2 - 4 ár | 0,30% |
| 4 - 6 ár | 0,35% |
Tafla 2
Kvika greiðir viðskiptavökum þóknun fyrir viðskiptavaktina og veitir þeim jafnframt aðgang að verðbréfalánum í formi endurhverfra viðskipta. Hámark endurhverfra viðskipta, á hverjum tíma, er 320 m.kr. fyrir hvern viðskiptavaka.
Sala skuldabréfa til eigin nota og viðbótarútgáfa KVIKA CB 32
Samhliða gerð samninga um viðskiptavakt bauðst viðskiptavökum að kaupa skuldabréf í KVIKA CB 32 sem Kvika hafði áður gefið út til eigin nota. Viðskiptavakar keyptu samtals 240 m.kr. að nafnverði á dagslokaverði 24. nóvember. Afhending og uppgjör fer fram 27. nóvember.
Kvika mun jafnframt gefa út 700 m.kr. að nafnverði Í KVIKA CB 32 til eigin nota. Áætluð afhending vegna viðbótarútgáfunnar fer fram 2. desember. Að viðbótarútgáfunni lokinni verður heildarnafnverð KVIKA CB 32 7.120 m.kr., þar af 960 m.kr. til eigin nota.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is