Alvotech tekur þátt í tveimur fjárfestaráðstefnum í desember

Iceland, Germany, India, U.S.


REYKJAVÍK 25. NÓVEMBER 2026  – Alvotech tekur þátt í tveimur alþjóðlegum fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum í desember.

  • Níunda árlega heilbrigðisráðstefna fjárfestingarbankans Evercore í Coral Gables, Flórída - samtal við greinanda bankans þriðjudaginn 1. desember nk. kl. 14:10
  • Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Citi-bankans í Miami, Flórída - fundir með fjárfestum miðvikudaginn 2. desember nk.

Hægt verður að hlýða á beint streymi af samtalinu við greinanda Evercore og að því loknu verður upptaka aðgengileg á vef Alvotech í 90 daga. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu félagsins undir liðnum „Fjárfestar – Viðburðir og kynningar“: https://www.alvotech.com/is/vidburdir.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður hafa þegar hlotið markaðsleyfi og eru komnar á markað, hliðstæður við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Aaíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech.


GlobeNewswire

Recommended Reading