Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á á nýjum 6 mánaða víxlaflokki UR 27 0601. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 740 m.kr. með 8,68% vöxtum, sem samsvarar 0,34% álagi á 6M Reibor. Á gjalddaga, þann 1. desember næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 1.440 milljónir króna.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 1. desember 2026.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR:
„Við hjá ÚR erum sem fyrr þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna félaginu. Það er ljóst að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.”
Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is