Rarik ohf., kt. 520269-2669, Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík, hefur birt lýsingu í tengslum við umsókn um töku græna skuldabréfaflokksins RARIK 100633 GB til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Jafnframt hefur verið sótt um að skuldabréfin verði skráð á Nasdaq Sustainable Debt Market.
Lýsingin, sem samanstendur af útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, báðum dagsettum 27. nóvember 2026, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vefsíðu Rarik: https://www.rarik.is/um-rarik/fjarmal.
Landsbankinn hf. hafði umsjón með ferlinu vegna staðfestingar lýsingarinnar hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta.
Nánari upplýsingar veitir Rarik ohf. í síma 528 9000.
Viðhengi