Í dag, 27. nóvember 2026, afhentu Ásar hf. seljendum Opinna kerfa hf. og Öryggismiðstöðvar Íslands hf. 138.496.884 eigin hluti sem hluta af kaupverði félaganna. Við afhendinguna fór hlutfall eigin hluta Ása hf. niður fyrir 5% af heildarfjölda útgefinna hluta.
Jafnframt voru 280.000.000 nýir hlutir í Ásum hf. teknir til viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Hlutirnir voru gefnir út til greiðslu hluta kaupverðsins samkvæmt ákvörðun stjórnar Ása hf. á grundvelli heimildar hluthafafundar 28. janúar 2026.
Fyrir afhendinguna áttu Ásar hf. 145.466.241 eigin hluti. Að afhendingu lokinni á félagið 6.969.357 eigin hluti, sem samsvarar 0,26% af 2.680.000.000 útgefnum hlutum í félaginu.
Tilkynning þessi er birt samkvæmt 29. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.