Afkomukynning Glitnis banka vegna 2. ársfjórðungs 2008 kl. 9:30 á föstudag - athugið breyttan fundartíma



Lárus Welding, forstjóri Glitnis, kynnir uppgjörið fyrir hluthöfum og
markaðsaðilum kl. 9:30, föstudaginn 1. ágúst á Nordica Hilton
hótelinu (salir  H og I) í stað 9:00 eins og áður hefur verið
auglýst.
Fundurinn fer fram á ensku.

Fylgjast  má  með  fundinum  beint  á  Netinu  á  heimasíðu  Glitnis,
www.glitnir.is. Jafnframt verður hægt að senda spurningar á fundinn.

Kynning í London
Lárus Welding forstjóri og Rósant Már Torfason fjármálastjóri kynna
uppgjörið fyrir markaðsaðilum þriðjudaginn 5. ágúst kl. 16 að
staðartíma. Fundurinn fer fram í Great Eastern salnum á Andaz
hótelinu, 40 Liverpool Street, London EC2M 7QN. Þátttakendur eru
vinsamlega beðnir að skrá sig með tölvupósti á IR@glitnir.is

Bókun fjölmiðlaviðtala
Til að bóka fjölmiðlaviðtöl, vinsamlegast hafið samband við Má
Másson, forstöðumann kynningarmála á Íslandi, með því að senda
tölvupóst til mar.masson@glitnir.is eða hringja í síma 440 4990.

Frekari upplýsingar veitir:
Sigrún Hjartardóttir
Forstöðumaður fjárfestatengsla
sími 440 4748 eða í gegnum netfang sigrun.hjartardottir@glitnir.is