Eimskip fellir afkomuspá fyrir árið 2020 úr gildi


Eimskip hefur ákveðið að fella afkomuspá sína fyrir árið 2020 úr gildi vegna óvissunnar í tengslum við Covid-19 veiruna. Aukin neikvæð áhrif á alþjóðlegt efnahagsumhverfi, þ.á.m. Norður-Atlantshafssvæðið sem er kjarnamarkaður félagsins, mun hafa áhrif á tekjur og arðsemi á næstu vikum og mánuðum.

Þegar hafðar eru í huga þær breytingar sem eiga sér stað dag hvern er ljóst að félagið getur ekki í þessu ástandi metið hversu lengi það muni vara og hvaða áhrif það mun hafa. Eimskip mun halda áfram að vakta og fylgjast grannt með þróun Covid-19, en félagið hefur gripið til margvíslegra aðgerða síðustu daga og vikur til að takmarka áhrifin á reksturinn. Áherslan hefur verið lögð á að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna og að tryggja flutningakeðju félagsins og þjónustu við viðskiptavini.

Reksturinn á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hefur verið sveiflukenndur. Janúar fór ágætlega af stað, febrúar var talsvert undir áætlun, en mars hefur fram til þessa verið í samræmi við áætlanir.

Eimskip er fjárhagslega sterkt með hagstætt eiginfjár hlutfall og góða lausafjárstöðu, fjölbreyttan rekstur og breiðan viðskiptamannahóp sem er mikilvægur grunnur.

Uppfærð afkomuspá verður birt markaðinum þegar skyggnið batnar og hægt verður að meta áhrif Covid-19 á rekstur félagsins.


Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir,  markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is