Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020


Kynningarfundur 20. maí 2020

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða þriðjudaginn 19. maí.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör fjórðungsins.


Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 8:30 og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður hann eingöngu sendur út gegnum fjárfestasíðu  félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir kl. 8:00 á miðvikudagsmorgun á netfangið investors@eimskip.com merkt fjárfestafundur.

Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.
Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.

Recommended Reading