Síldarvinnslan hf. birtir afkomu annars ársfjórðungs 2023 fimmtudaginn 24. ágúst 2023 eftir lokun markaða. Fjárfestakynning haldin sama dag.


Síldarvinnslan birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða á fimmtudaginn kemur 25. maí.

Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 1630 og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is.